Linda Ben

Vikumatseðill 5.-11. janúar

Lengi hefur það verið draumur minn að geta boðið ykkur upp á meira ýtarefni. Efni sem nýtist ykkur í raun og veru til að einfalda hversdagslífið, spara tíma og gera heimilishaldið bæði skemmtilegra og skipulagðara.

Þess vegna hef ég nú sett af stað áskriftarvettvang á Patreon, þar sem ég mun deila efni sem er eingöngu aðgengilegt meðlimum.

Á Patreon finnur þú meðal annars:
– Sérstakar uppskriftir fyrir áskrifendur
– Vikumatseðla með innkaupalistum sem auðvelda skipulagið
– Árstíðabundnar hugmyndir að réttum, til dæmis fyrir páskana eða bolludaginn 
– Lengri, ítarlegri og nákvæmari uppskriftarmyndbönd fyrir þær uppskriftir sem kalla á meiri útskýringar

Eins mikið og ég elska Instagram reels, þá eru þau oft hraðari og skemmtilegri í uppsetningu – sem hentar frábærlega fyrir innblástur, en ekki alltaf þegar maður er í raun að elda.
Á Patreon finnur þú því hægar, rólegri og mun ítarlegri matreiðslumyndbönd, þar sem ég fer skref fyrir skref í gegnum uppskriftirnar.

Það er mjög einfalt að skrá sig sem meðlim á Patreon. Best er að nota appið, en það er líka hægt að nota vefsíðuna – þannig að þú velur sjálf/ur hvort þú nýtir efnið í símanum, spjaldtölvunni eða tölvunni.

Þeir sem skrá sig fá tilkynningu í tölvupósti þegar nýtt efni fer í loftið, og ég mun einnig vera dugleg að minna á nýtt efni á öllum mínum vettvöngum.

Á næstu mánuðum stefni ég á að gera ýmislegt skemmtilegt fyrir áskrifendur, þar á meðal:
– Gjafaleiki
– Tilboð og afslætti hjá völdum verslunum
– og fleiri skemmtileg fríðindi sem ég hlakka til að deila með ykkur

👉 Hér getur þú nálgast vikumatseðil ásamt innkaupalistum fyrir vikuna. 

Ég hlakka ótrúlega mikið til að byggja þetta upp með ykkur

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5