Linda Ben

Vikumatseðill og innkaupalistar fyrir 2. – 8. mars

👉 Hér getur þú nálgast vikumatseðil vikunnar ásamt innkaupalistum fyrir vikuna. 

Innkaupalistarnir eru algjör game changer þegar kemur að búðarferðunum. Sérstaklega þegar maður er á seinstu stundu.

Þú ræður hvort þú nýtir þér alla réttina eða bara einn og einn, þar sem það er sér innkaupalisti fyrir hverja máltíð.

Réttirnir eru allir einfaldir og fljótlegir eins og við elskum öll á annasömum vikudögum. Að sjálfsögðu eru þetta fjölskylduvænir réttir líka sem krakkarnir elska jafnt og fullorðnir. 

Vikumatseðillinn er samsettur úr fjölbreyttum réttum sem næra líkama og sál. Hér finnur þú allskonar kjúklinga og kjötrétti, sem og girnilega grænmetisrétti.

Á sunnudögum er ekki kvöldmáltíð heldur réttur sem hægt er að gera til að undirbúa vikuna sem er framudan. Við erum að tala um orkustykki til að taka með í nesti, granóla til að eiga út á jógúrtið í vikunni eða annað sniðugt og nytsamlegt.

Það er mjög einfalt að skrá sig sem meðlim á, Leyndarmál Lindu rásinni minni, á Patreon. Best er að nota appið, en það er líka hægt að nota vefsíðuna – þannig að þú velur sjálf/ur hvort þú nýtir efnið í símanum, spjaldtölvunni eða tölvunni.

Þeir sem skrá sig fá tilkynningu í tölvupósti þegar nýtt efni fer í loftið, og ég mun einnig vera dugleg að minna á nýtt efni á öllum mínum vettvöngum.

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5