Ég gerði þetta klassíska basil pestó en skipti út parmesan ostinum út fyrir næringar ger til þess að gera það alveg vegan og næringarríkara. Það er frábært til þess að þykkja pestóið svipað og osturinn gerir og gefur gott bragð.
Vegan pestó
- 60 g ferskt basil (tvö box)
- 1 dl furuhnetur
- 1 – 1½ hvítlauksgeiri
- 2 dl extra virgin ólífu olía
- 2-3 msk næringar ger
- 1 msk sítrónusafi
- salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Basil, furuhnetur og hvítlaukur er sett í matvinnsluvél og maukað gróflega. Hellið extra virgin ólífu olíu út í, í mjórri bunu, á meðan blandarinn er í gangi.
- Blandið saman við næringar geri, sítrónusafa og salti og pipar. Setjið í fallega skál, skreytið með salti og extra virgin ólífu olíu
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njóttu vel!
Þín Linda Ben
Category: