Linda Ben

3 uppskriftir af afar einföldum köldum sósum

Recipe by
| Servings: Unnið í samstarfi við Heinz

3 mismunandi kaldar sósur, karrý sósa, alioli sósa, trufflu majónes

Hér er að finna þrjár uppskriftir af köldum sósum sem gott er að hafa með allskonar mat. Þær eiga það sameiginlegt að taka enga stund að smella saman, ekkert vesen og afskaplega einfalt allt saman.

Karrý sósa

  • 2 dl majónes
  • 2 tsk karrý
  • 1 msk sinnep
  • Safi úr ½ lime
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Blandið öllum innihaldsefnum saman, smakkið til með salti og pipar.

Alioli sósa

  • 2 dl  majónes
  • 1 lítill hvítlaukur eða 3 rif
  • Safi úr ½ sítrónu
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  • Blandið öllum innihaldsefnum saman og kryddið til með salti og pipar.

Trufflu majónes

  • 2 dl majónes
  • ½ lítill hvítlaukur eða 1 hvítlauksrif
  • ½ dl trufflu olía
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Blamdið öllum innihaldsefnum saman og smakkið til með salti og pipar.

3 mismunandi kaldar sósur, karrý sósa, alioli sósa, trufflu majónes

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5