Túrmerik hefur fjölmörg heilsubætandi áhrif. Það hefur verið sýnt fram á að það hafi bólguhamlandi áhrif á líkamann. Þannig stuðlar það að bættri geðheilsu, minni liðarverkjum, minnkar líkur á krabbameini, hefur góð áhrif á útlitið og margt fleira. Appelsínur og mangó eru meðal annars rík af C-vítamíni en það hefur einnig fjölmörg heilsubætandi áhrif.
Þessi drykkur er ekki bara hollur heldur alveg dásamlega góður líka!
Appelsínu og túrmerik drykkur sem bætir heilsu og útlit:
- 1 appelsína
- 1 mangó
- hálfur lítill bútur af fersku túrmerik (um það bil 1,5 cm)
- Vatn að MAX línunni
Aðferð:
- Afhýðið appelsínuna og mangóið.
- Rífið túrmerikið með rifjárni
- Setjið allt í lítið Nutribullet glas, fyllið að MAX línunni með vatni og blandið.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben 🙂
Category: