Áramóta ostabakki
Pringles snakki er raðað upp og úr því myndað 2021. Ostum, berjum og sælgæti raðað meðfram á stóran bakka eða hreinlega beint á borðið ef það er að henta best.
Áramóta ostabakki
- 4 stk Pringles snakk staukar
- Primadonna ostur
- Brie ostur
- Höfðingi ostur
- Kastali ostur
- Jarðaber
- Bláber
- Hindber
- Blæjuber
- Mandarínur
- Vínber
- Sulta
- Nammi
- Ídýfa
Aðferð:
- Byrjið á því að hella Pringles snakkinu varlega á stóran bakka, minn bakki er 60 cm á lengd og 40 cm breiður, en það er líka hægt að gera þetta á tvo bakka eða hreinlega beint á borðið. Passið að snakkið haldist í línu og þétt upp við hvort annað þegar þið takið það úr stauknum, myndið sveigju á línuna hægt og rólega án þess að það “losni” frá hvor öðru. Myndið 2 úr fyrsta stauknum, svo 0, svo aftur 2 og loks 1 úr fjórða stauknum.
- Raðið í kring ostunum, berjunum, nammi, sultu og ídýfu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar