Linda Ben

Áramótapartýbakkinn

Áramótapartýbakkinn er mættur!

Ef þú ert að leita þér að einhverju sem þú getur smellt saman fyrir gamlárskvöld með lítilli fyrirhöfn en mun heilla alla gestina upp úr skónum þá er svona partýbakki ótrúlega sniðugur.

Á partýbakka er mikilvægt að hafa fjölbreytt kjötálegg, mismunandi gerðir af ostum, ber og sultur.

Mér finnst alltaf fallegast þegar svona bakkar eru svolítið frjálslegir, berjunum raðað beint á bakkann og þeim leyft að umlyggja annað á bakkanum.

Áramótapartýbakkinn

  • Ítalskt salami frá SS
  • Roast beef frá SS
  • Rauðvínssalami
  • Hamborgarahryggur (álegg) frá SS
  • Tindfalla hangikjet tvíreykt hanggikjöt frá SS
  • Kokteilpylsur frá SS
  • Gráðostur
  • Camembert stór
  • Brie
  • Primadonna
  • Castello osta ananashringur
  • Jarðaber
  • Brómber
  • Bláber
  • Vínber
  • Finn Crisp snakk
  • Ferkst rósmarín (sem skraut)
  • Sulta

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið smjörpappír á ofnplötu og raðið kokteilpylsunum á plötununa, bakið í 10-15 mín.
  3. Raðið kjötálegginu fyrst á bakkann, notið stóran bakka, minn er héðan. Skerið Rauðvínssalami í sneiðar. Það er fallegt að brjóta annað kjötálegg saman til að gera smá áferð. Ég braut hvert álegg saman fjórum sinnum (svona eins og servíettur eru brotnar saman) og raðaði saman í þyrpingu. Tvíreykta hangikjötinu raðaði ég saman eins og blómi en það er gert með því að taka freyðivínsglas og raða álegginu á brúnir glassins, ofan á hvort annað, hvolfa svo glasinu á bakkann og þá er komin rós.
  4. Því næst raðiði ostunum á bakkann, berjunum, snakkinu, sultunni og skreytið svo með fersku rósmarín.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5