Linda Ben

Asísk núðlusúpa með risarækjum

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Oscar | Servings: Fyrir 3 manns

Þessi núðlusúpa er æðislega góð og afar einföld. Eitthvað sem allir elska er það ekki?

Asísk núðlusúpa með risarækjum

Asísk núðlusúpa með risarækjum

  • 400 g risarækjur
  • 1 msk steikingar olía
  • Salt og pipar
  • ½ laukur
  • 1 paprika
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 tsk rifið engifer
  • 2 tsk karrý mauk
  • 1 dós kókosmjólk
  • 1 líter vatn
  • 3 tsk grænmetiskraftur
  • 2 búnt eggjanúðlur
  • Lime
  • Kóríander

Aðferð:

  1. Kryddið rækjurnar með salti og pipar eftir smekk, setjið olíu á pönnu og steikið rækjurnar á meðal háum hita þar til þær eru orðnar allar bleikar. Takið rækjurnar af pönnunni og geymið.
  2. Skerið laukinn og paprikuna niður og steikið upp úr olíu. Bætið saxaða hvítlauknum og engiferinu út á og steikið létt, því næst bætiði karrý maukinu út á.
  3. Hellið kókosmjólkinni út á og notið töfrasprota til að mauka grænmetið. Bætið vatni og grænmetiskrafti út á og hrærið öllu saman. Látið suðuna koma upp og smakkið til með salti og pipar. Leyfið súpunni að sjóða saman í u.þ.b. 5-10 mín. Bætið því næst rækjunum út í súpuna ásamt núðlunum. Leyfið súpunni að sjóða þar til núðlurnar eru tilbúnar. Berið fram með lime og fersku kóríander.

Asísk núðlusúpa með risarækjum

Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5