Linda Ben

Aspassúpa

Recipe by
40 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu mjólkurvörur | Servings: 4 manns

Hér höfum við alveg dásamlega góða heimalagaða aspassúpu úr ferskum aspas sem þú átt alveg örugglega eftir að elska. Barnvænn, hollur og góður matur.

Það er upplagt að bera súpuna fram með góðu brauði og smjöri.

Súpan er einföld að gera en maður steikir fyrst lauk, aspas og hvítlauk. Bætir svo vatni og kjúlingakrafti út á og lætur malla, maukar svo súpuna. Því næst bætir maður rjómanum út á, kryddar til og lætur malla aðeins meira. Að lokum þeytir maður smá rjóma og skreytir súpuna með fersku timjan.

Aspassúpa

Aspassúpa

Aspassúpa

Aspassúpa

  • 1 laukur
  • 2-3 msk smjör
  • 2 búnt af ferskum aspas
  • 3-4 hvítlauksgeirar
  • 1 líter vatn
  • 2-3 kjúklingakraftar
  • 500 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • Salt og pipar
  • Sítrónusafi úr 1/2 sítrónu
  • U.þ.b. 1 dl rifinn parmesan
  • Ferskt timjan

Aðferð:

  • Skerið laukinn niður og steikið hann upp úr smjöri.
  • Skerið hörðu endana af aspasnum og hendið í ruslið.
  • Skerið toppinn af aspasnum og geymið í skál. Skerið restina af aspasnum niður í litla bita og bætið út í pottinn.
  • Rífið hvítlauksgeirana niður og bætið úr í pottinn og steikið létt. Bætið svo vatninu út í ásamt 2 kjúklingakröftum, smá salti og slatta af pipar. Leyfið suðunni að koma upp og látið malla í u.þ.b. 15 mín. Maukið súpuna með töfrasprota.
  • Bætið 400 ml af rjómanum út i súpuna ásamt toppunum af aspasstöglunum sem voru skornir af og geymdir áðan. Bætið sítrónusafanum, parmesaninum og öðrum kjúklingakrafti (ef ykkur finnst vanta) út í og leyfið öllu að malla í 10-15 mín.
  • Þeytið restina af rjómanum til að setja út á súpuna í skálunum, skreytið með fersku timjan, parmesan og svörtum pipar.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Aspassúpa

Category:

2 Reviews

  1. Guðbjartur Torfason

    Þessi súpa sló í gegn

    Star
  2. Linda

    Frábært að heyra! Takk fyrir að láta mig vita 😊❤️

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5