Auðvelur, fljótlegur og bragðgóður pastaréttur sem er fullur af hollu og góðu grænmeti. Þessi réttur er eldaður á einni pönnu, fyrst er kjúklingurinn steiktur og tekinn til hliðar, svo er grænmetið steikt á sömu pönnu og hún ekki þrifinn á milli. Þannig notum við bragðið af kjúklingnum betur þannig að sósan verður bragðmeiri og betri.
Auðvelt kjúklingapasta með spínati og tómötum, uppskrift:
- 3 Kjúklingabringur
- 250 gróft penne pasta
- 1 tsk papriku krydd
- ½ tsk timían
- ½ tsk basil
- ½ tsk oregano
- 2 stk hvítlauksrif
- 150 g spínat
- 8 kirsuberjatómatar
- Hvítlauks ostur, rifinn
- 200 ml rjómi
Aðferð:
- Setjið vatn í pott og sjóðið.
- Á meðan suðan er að koma upp þá byrjið þið á að skera kjúklingabringurnar í bita stóra hluta.
- Kryddið kjúklingabringurnar með papriku kryddi, timían, basil og oregano. Steikið kjúklingabitana á pönnu þangað til þeir eru eldaðir í gegn og setjið svo á disk með álpappír yfir.
- Ef suðan er komin upp í pottinum þá setjið þið ½ tsk salt í vatnið og ólífu olíu, setjið svo pastað ofan í pottinn og sjóðið þangað til það er tilbúið.
- Á sömu pönnu á vægum hita steikið þið 2 hvítlauksrif sem hafa verið skorin smátt niður, tómatana og spínatið.
- Hellið rjómanum yfir pönnuna og rífið hvítlauksostinn. Látið suðuna koma rólega upp.
- Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna og látið malla stutta stund.
- Þegar pastað er tilbúð hellið þið vatninu af því og setjið á pönnuna, blandið saman.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #lindulostæti
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í Kosti.
Category: