Avocadó eggjasalat
- 2 avocadó
- 3 harðsoðin egg
- ¼ rauðlaukur
- Safi úr ½ sítrónu
- 2 msk majónes
- ½ msk sætt sinnep
- Salt og pipar
- Þurrkað chilí krydd
Aðferð:
- Skerið niður avocadóið, eggin og rauðlaukinn smátt niður. Setjið í skál ásamt majónesi, sinnepi og sítrónusafa og blandið saman.
- Kryddið með salt, pipar og chilí kryddi eftir smekk.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: