Linda Ben

Avokadóbrauð með kirsuberjaviðarreyktri bleikju og hleyptu eggi

Það þarf ekki mikið til að útbúa virkilega góða morgunverðar- eða hádegismáltíð. Stökkt súrdeigsbrauð, silkimjúkt avókadó, kirsuberjareykt bleikja og fullkomlega hleypt egg eru klassísk blanda sem klikkar aldrei.

Þetta er einföld uppskrift sem lítur út fyrir að vera úr brunchseðli á góðu kaffihúsi en tekur aðeins örfáar mínútur að útbúa heima. Fullkomin þegar mig langar í eitthvað ferskt, bragðgott og fallegt á diskinn.

Kirsuberjaviðarreykta bleikjan frá Hnýfill er alveg dásamlega góð. Bragðið er milt og bleikjan einstaklega ljúffeng, hún er alveg í mjög miklu uppáhaldi hjá mér! Þú finnur hana t.d. í Krónunni og Hagkaup.

Avocadó ristað brauð með bleikju og hleyptu eggi

Avocadó ristað brauð með bleikju og hleyptu eggi

Avocadó ristað brauð með bleikju og hleyptu eggi

Avocadó ristað brauð með bleikju og hleyptu eggi

Avokadóbrauð með kirsuberjaviðarreyktri bleikju og hleyptu eggi

  • Súrdeigsbrauð
  • Kirsuberjareykt bleikja frá Hnýfill
  • Avokadó
  • Egg
  • Ferskt dill
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Ristið súrdeigsbrauðið og setjið ½ avocadó á sneiðina.
  2. Skerið bleikjuna í sneiðar og setjið þær ofan á brauðið.
  3. Útbúið hleypt egg með því að setja soðið vatn í pott, bætið 1 msk ediki í vatnið. Brjótið eggið í lítinn bolla eða desilítramál og hellið því svo það varlega ofan í sjóðandi vatnið. Sjóðið í 3 ½ mínútu og takið upp með stórri skeið. Leggið eggið ofan á brauðið.
  4. Kryddið til með salti og pipar og skreytið með fersku dilli.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Avocadó ristað brauð með bleikju og hleyptu eggi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5