Þessi ofnbakaði lax er ótrúlega einfaldur í útbúningi en um leið svo bragðgóður og girnilegur. Laxinn er smurður með hunangssinnepi og toppaður með stökkum súrdeigsbrauðraspi, parmesanosti, fersku dilli og hvítlauk. Þegar laxinn kemur úr ofninum er brauðraspurinn orðinn fallega gylltur og stökkur á meðan laxinn er mjúkur og safaríkur að innan. Smá ferskur sítrónusafi yfir í lokin fullkomnar svo réttinn.
Í þessa uppskrift nota ég ferskan Landlax frá Samherja sem er alinn í landeldi hér á Íslandi. Það sem er sérstaklega áhugavert við landeldið er hversu vel er hægt að stýra aðstæðunum sem fiskurinn elst upp við, meðal annars hitastigi, súrefni og seltu vatnsins. Samherji hefur áratuga reynslu af landeldi og leggur mikla áherslu á gæði og góðar eldisaðstæður sem eru umhverfisvænar.
Þetta er einn af þessum fiskréttum sem henta jafnvel á venjulegum virkum degi og þegar maður vill bjóða upp á eitthvað aðeins extra gott.
Ég mæli sérstaklega með að bera laxinn fram með góðum kartöflum og fersku salati, en hann er líka góður með hrísgrjónum eins og ég gerði.






Bakaður lax með stökkum hunangssinneps brauðraspi
- 800 g Landlax – ferskur fiskur með roði
- Hunangssinnep u.þ.b. ½ msk á hvern laxabita
- U.þ.b. 1 ½ dl súrdeigs brauðraspur (ég létt rista gott súrdeigsbrauð og set svo í matvinnsluvél)
- 2-3 hvítlauksgeirar
- 1 dl rifinn parmesan ostur
- 1 dl fersk dill smátt saxað
- Salt og pipar
- Ólífu olía
- Sítróna
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita.
- Setjið laxinn í eldfast mót og þerrið hann með eldhúspappír. Smyrjið hunangssinnepi jafnt yfir laxinn.
- Setjið brauðraspinn í skál. Rífið hvítlauksgeirana og parmesanostinn út í. Saxið dillið smátt og bætið því saman við. Blandið öllu vel saman.
- Dreifið brauðraspsblöndunni jafnt yfir laxinn og þrýstið henni létt niður svo hún haldist á sínum stað. Kryddið með salti og pipar og dreifið örlítið af ólífuolíu yfir.
- Bakið í ofni í u.þ.b. 12–17 mínútur, eða þar til laxinn er eldaður að óskum og brauðraspurinn orðinn fallega gylltur og stökkur. Bökunartíminn fer eftir þykkt laxins. Látið hvíla í 2–3 mínútur áður en hann er borinn fram.
- Berið fram með sítrónubátum og kreistið ferskan sítrónusafa yfir laxinn.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










