Linda Ben

Banana og gulrótarbrauð (v)

Recipe by
1 klst og 15 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Veru Örnudóttir

Þetta bananabrauð er alveg dásamlega gott! Það er ólíkt öðrum bananabrauðum að því leyti að það inniheldur einnig gulrætur sem gera það ennþá mýkra og minnir svolítið á gulrótaköku.

Það inniheldur engin egg eða mjólkurvörur og er vegan.

Banana og gulrótarbrauð (v)

Banana og gulrótarbrauð (v) Banana og gulrótarbrauð (v) Banana og gulrótarbrauð (v)

Banana og gulrótarbrauð (v)

Banana og gulrótarbrauð (v)

  • 200 g spelt – skipt 50% gróft og 50% fínt (líka hægt að nota hefðhundið hveiti)
  • 2 tsk kanill
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • Klípa af salti
  • 75 g sykur
  • 1 dl hafrajógúrt með vanillu frá Veru Örnudóttur
  • 1/2 dl fljótandi kókosolía
  • 3 meðal stórir vel þroskaðir bananar (+1 auka til að setja ofan á brauðið en má sleppa)
  • 125 g rifnar gulrætur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið spelt/hveiti, kanil, lyftiduft, matarsóda og salt  í skál, blandið saman.
  3. Setjið sykur, hafrajógúrt, kókosolíu í skál og blandið saman.
  4. Stappið bananana og blandið þeim saman við jógúrtblönduna.
  5. Hellið banana+jógúrtblöndunni út í þurrefnablönduna og blandið saman.
  6. Rífið gulræturnar og setjið ofan í skálina, blandið saman við.
  7. Hellið deiginu í smjörpappírsklætt form sem er 11×25 cm eða sambærilega stórt.
  8. Ef þið viljið þá getiði skorið einn banana þvert og sett ofan á deigið.
  9. Bakið í u.þ.b. 50-55 mín eða þar til brauðið er bakað í gegn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Banana og gulrótarbrauð (v)

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5