Þessi kaka var lang uppáhalds kakan mín sem barn. Ég hef ekki smakkað hana frá því að ég var u.þ.b. 7 ára en þá gátum ég og systir mín nánast borðað heila rúllutertu einar. Það var ótrúlega gaman að finna þessa gömlu uppskrift aftur frá ömmu Dúu og ferðast aðeins aftur í tímann.
Mig minnir að kakan hafi verið aðeins fallegri þegar amma gerði hana en upprúllunartæknin hlýtur að koma með æfingunni.
Bananarúllan hennar ömmu:
- 3 egg
- 2 dl sykur
- 1 msk hveiti
- ½ dl kartöflumjöl
- 1 tsk lyftiduft
- 2 msk kakó
- 2-3 bananar
- 250 ml rjómi
Aðferð:
- Stillið ofninn á 230°C
- Setjið egg og sykur saman í hrærivél og þeytið mjög vel saman í nokkrar mín.
- Blandið saman hveiti, kartöflumjöli, lyftidufti og kakói og sigtið yfir eggjablönduna. Blandið saman með sleikju.
- Setjið smjörpappír í 23×34 cm form, brjótið smjörpappírinn vel ofan í formið svo hornin eru greinileg. Hellið deiginu ofan í formið og bakið í 8-10 mín. Kakan á að vera bökuð í gegn en samt ennþá mjög mjúk og nánast hreifanleg í miðjunni.
- Látið kökuna kólna í nokkrar mín, setjið smjörpappír á borðið og setjið flórsykur á pappírinn. Hvolfið kökunni mjög hratt á smjörpappírinn með flórsykrinum. Látið kökuna kólna alveg áður en þið takið smjörpappírinn af sem kakan var bökuð í. Fjarlægið hann svo af mjög varlega.
- Skerið bananana niður í frekar þunnar sneiðar og þekjið kökuna í bönunum.
- Þeytið rjómann og smyrjið honum yfir alla kökuna.
- Frá langhlið rúllið kökuna varlega upp, notið smjörpappírinn undir kökunni til að rúlla henni þétt upp.
- Flytjið kökuna á kökudisk. Setjið flórsykur í sigti og sigtið létt yfir kökuna.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #lindulostæti
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben