Basil Aioli sósa passar vel með flest öllum mat, til dæmis kjúkling, fiski eða pasta.
Sósan er einföld í framkvæmd og inniheldur einungis 5 innihaldsefni. Maður byrjar á því að mauka saman basil lauf, hvítlauk og smá majónes í matvinnsluvél, svo blandar maður því mauki saman við meira majónes og kryddar til með salti og pipar.
Basil Aioli sósa
- 2 hvítlauksgeirar
- Fersk basil, u.þ.b. 1 dl af saman þjöppuðum laufum
- 250 g majónes
- Salt og pipar
Aðferð:
- Maukið saman hvítlauk, basil og 1 msk majónes í lítilli matvinnsluvél eða með töfrasprota.
- Setjið restina af majónesinu í skál og bandið maukinu saman við með t.d. skeið eða litlum þeytara. Smakkið til með salti og pipar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: