BBQ kjúklingagrillspjót
Þessi BBQ kjúklingagrillspjót eru litrík, sumarleg og alveg ótrúlega góð beint af grillinu. Safaríkur kjúklingur, sætur ananas og grænmeti er þrætt upp á spjót og grillað þar til allt er orðið fallega gyllt. Undir lokin eru spjótin pensluð vel með Hunt’s BBQ sósu sem karamelliserast á grillinu og gefur þeim dásamlegt BBQ bragð.
Einfaldur og skemmtilegur grillréttur sem er fullkominn fyrir góð sumarkvöld!






BBQ kjúklingagrillspjót
- 800 g kjúklingalæri
- Kjúklingakryddblanda
- ½ ananas
- 2 paprikur
- 2 rauðlaukar
- 1 kúrbítur
- Hunt’s BBQ sósa
Aðferð:
- Skerið hvert kjúklingalæri í þrjá bita. Kryddið vel með kjúklingakryddblöndu.
- Skerið ananasinn, paprikurnar, rauðlaukana og kúrbítinn niður í hæffilega bita.
- Raðið kjúklingnum, ananasnum og grænmetinu til skiptis upp á grillspjót.
- Grillið spjótin þar til kjúklingurinn er nánast fulleldaður. Penslið spjótin þá vel með BBQ sósu á öllum hliðum og grillið áfram þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og BBQ sósan hefur karamelliserast örlítið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:








