Ef þið elskið bragðmikil salöt sem bæði metta vel og eru stútfull af fersku bragði, þá verðið þið að prófa þetta BBQ kjúklingasalat! 😍
Safaríkur BBQ kjúklingur, ferskt grænmeti, kryddaðar svartar baunir, stökkt nachos og mexíkóostur mynda saman fullkomna blöndu. Það sem setur punktinn yfir i-ið er hins vegar silkimjúka kóríanderdressingin sem gefur salatinu ótrúlega ferskt og ljúffengt bragð.
Þetta er svona salat sem hentar jafnt í kvöldmat, grillveislur eða þegar mann langar í eitthvað létt en einstaklega bragðgott. Það er einfalt í undirbúningi, litríkt á borðinu og klárlega uppskrift sem ég geri aftur og aftur.






BBQ kjúklingasalat með kremaðri kóríanderdressingu
- 850 g úrbeinuð kjúklingalæri
- Mexíkósk kryddblanda
- Hunt’s Original BBQ sósa
- Salatblanda
- 250 g litlir tómatar
- ½ agúrka
- 165 g gular baunir
- 400 g svartar baunir
- Salt og pipar
- Mexíkóostur
- Nachos snakk
Ljúffeng kóríanderdressing
- 1 ½ dl mæjónes
- 1-2 hvítlauksrif
- 15 g kóríander
- Safi úr ½ lime
- 1 msk hunang
- Salt og pipar
Aðferð:
- Kryddið kjúklinginn með mexíkóskri kryddblöndu og grillið á báðum hliðum þar til kjúklingurinn er nánast eldaður í gegn. Smyrjið kjúklinginn vel með BBQ sósu á báðum hliðum og grillið þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Leyfið honum að standa í nokkrar mín við stofuhita áður en hann er skorinn í sneiðar.
- Útbúið sósuna með því að setja mæjónes, hvítlauksgeira, kóríander, limesafa, hunang, salt og pipar í blandara og blanda þar til orðið að ljúffengri dressingu.
- Skerið salatið, tómata og agúrku niður og setjið í skál ásamt gulum baunum.
- Setjið svartar baunir á pönnu ásamt mexíkóskri kryddblöndu og hitið saman. Bætið þeim út í skálina.
- Setjið helminginn af kóríanderdressingunni í skálina líka og blandið öllu saman. Bætið við meira af dressingu eftir smekk.
- Setjið salatið á fallegan disk.
- Brjótið nachos snakkið yfir salatið
- Skerið kjúklinginn niður og bætið við meira af BBQ sósu ef þið viljið. Setjið kjúklinginn yfir salatið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










