Linda Ben

Besta guacamole-ið

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 3-4 manns

Það er fátt sem toppar heimagert guacamole þegar það er gert úr góðum og vel þroskuðum avókadóum 😍🥑

Þetta guacamole er ferskt, kremkennt og fullt af bragði. Avókadóin fá að njóta sín með hvítlauk, rauðlauk, jalapenó, fersku kóríanderi og lime sem gefur þessari klassísku mexíkósku ídýfu fullkomið jafnvægi milli ferskleika, hita og sýru ✨

Leyndarmálið á bak við virkilega gott guacamole er að nota góð avókadó sem eru akkúrat rétt þroskuð. Avókadóin frá Náttúru eru akkúrat þannig. Ég hef bara ekki lennt í því að fá illa þroskað avokadó frá þeim, og þá er nú mikið sagt. Þú finnur þau t.d. í Bónus. Mér finnst líka mikilvægt að mauka það með gaffli frekar en að nota blandara svo það haldi þessari klassísku, grófu áferð sem gerir guacamole svo gott.

Þetta er uppskrift sem passar með nánast öllu, tortilla flögum, taco, burrito, grillmat eða sem hluti af veisluborði. Svo er það líka svo gott að maður endar oft með að borða það beint úr skálinni með skeið.

Svona einföld uppskrift sem sýnir að þegar hráefnin eru góð þarf ekki mikið meira til. ✨

Besta guacamole-ið

Besta guacamole-ið

Besta guacamole-ið

Besta guacamole-ið

  • 2 stk Náttúru Avókadó
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1 jalapenó
  • 15 g kóríander
  • 1 lime
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Maukið avókadóin í skál með gaffli.
  2. Rífið hvítlauksgeirana út í skálina.
  3. Saxið rauðlaukinn, jalapenóinn og kóríanderið mjög smátt niður og bætið út í skálina.
  4. Kreistið safann úr limeinu í skálina og blandið öllu vel saman.
  5. Kryddið til með salti og pipar.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Besta guacamole-ið

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5