Bilaðslega góða gríska ídýfan
Ég ætla bara að viðurkenna það strax, þessi ídýfa er alveg hættulega góð 😍
Þetta er svona réttur sem lítur út fyrir að vera einfaldur en þegar maður byrjar að dýfa brauðinu í hann er nánast ómögulegt að hætta. Bragðmikil extra virgin ólífuolía, safaríkir tómatar, saltaðar ólífur, kapers og fetaostur mynda saman þessa klassísku grísku bragðsamsetningu sem er svo ótrúlega góð 🇬🇷✨
Fersku kryddjurtirnar gefa svo ídýfunni ferskleika og lit sem lyftir öllu upp. Myntan, dillið og steinseljan frá VAXA passa einstaklega vel með fetaostinum og ólífunum og gera ídýfuna bæði ferska og sumarlega 🌿
Mér finnst þetta vera fullkominn réttur þegar gesti ber að garði, í stelpukvöldið, sem forréttur fyrir grillveisluna eða einfaldlega þegar mann langar að setjast niður og njóta.






Bilaðslega góða gríska ídýfan
- 1 dl hágæða extra virgin ólífu olía
- 1 msk balsamik edik
- 2 tómatar
- Salt og pipar
- 1/2 tsk oreganó
- 1 hvítlauksgeiri
- 300 g blandaðar ólífur
- 50 g kapers
- 200 g feta ostur – hreinn án olíu
- 15 g mynta frá Vaxa
- 15 g steinselja frá Vaxa
- 15 g dill frá Vaxa
- Súrdeigs baguette brauð
Aðferð:
- Setjið olíu á fallegan disk og bætið einnið balsamik edikinu út i olíuna.
- Notið rifjárn og rífið tómatinn á diskinn. Kryddið með salti, pipar og oreganó.
- Rifið hvítlauksgeirann á diskinn.
- Skerið ólífurnar í sneiðar og bætið á diskinn ásamt kapers og brjótið fetaostinn niður á diskinn líka.
- Saxið myntu, steinselju og dill og bætið út á diskinn.
- Blandið öllu saman og berið fram með nýbökuðu súrdeigs baguette.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










