Linda Ben

Bláberja haustjógúrt kaka sem þarf ekki að baka

Recipe by
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Bláberja haustjógúrt kaka sem þarf ekki að baka.

Létt og góð, ekki of sæt kaka sem passar vel hvort sem það er á brunch borðið, með kaffinu eða sem desert eftir góða máltíð.

bláberja haustjógúrt kaka sem þarf ekki að baka

bláberja haustjógúrt kaka sem þarf ekki að baka

bláberja haustjógúrt kaka sem þarf ekki að baka

Bláberja haustjógúrtkaka

  • 200 g hafrakex (t.d. graham kex)
  • 50 g hvítt súkkulaði
  • 60 g smjör
  • 350 ml rjómi (ath skipt í 250 og 100 ml)
  • 150 g hvítt súkkulaði
  • 200 g haustjógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
  • 2 dl frosin bláber
  • 2 msk sykur

Aðferð:

  1. Smyrjið eldfastmót eða kökuform sem er u.þ.b. 23 cm breitt og setjið smjörpappír í botninn.
  2. Myljið hafrakexið og hvíta súkkulaðið í matvinnsluvél eða blandara.
  3. Bræðið smjörið og blandið því saman við kexið, þrýstið því í botninn á kökuforminu. Setjið í frysti.
  4. Setjið hvíta súkkulaðið í pott ásamt 100 ml rjóma og bræðið varlega saman. Kælið blönduna örlítið svo hún sé ekki of heit þegar henni er hellt út í rjómann.
  5. Þeytið létt 250 ml rjóma og hellið hvíta súkkulaðinu útí í mjórri bunu á meðan þið klárið að þeyta rjómann þar til hann er orðinn vel þeyttur.
  6. Blandið haustjógúrtinu saman við og hellið svo ofan í kökuformið.
  7. Setjið frosin bláber í pott ásamt sykri og hitið þar til berin eru bráðnuð. Dreifið yfir kökuna. Setjið í frystinn í u.þ.b. 1 klst, leyfið svo kökunni að ná mesta frostinu úr sér áður en hún er borin fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

bláberja haustjógúrt kaka sem þarf ekki að baka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5