Þessi dásamlegi bláberjamarengshringur er ekki bara ótrúlega fallegur á veisluborðinu heldur líka alveg himneskur á bragðið!
Stökkur marengs með mjúkri miðju, léttur sítrónurjómi, ljúffeng St. Dalfour bláberjasulta og fersk bláber. Samsetningin er svo ótrúlega góð! Sætan í marengsinum og bláberjasultunni passar fullkomlega með ferskleikanum frá sítrónunni og gerir eftirréttinn einstaklega ljúffengan.
Mér finnst þessi marengshringur sérstaklega fallegur fyrir jólin, skreyttur með ferskum bláberjum og rósmaríni sem gefur honum svo hátíðlegt yfirbragð. 🎄
Það besta er að hægt er að baka marengsinn með góðum fyrirvara og því er lítið annað eftir en að þeyta rjómann og skreyta rétt áður en gestirnir koma. Fullkominn eftirréttur þegar maður vill bera fram eitthvað fallegt og gott án þess að eyða öllum deginum í eldhúsinu! ❤️







Bláberja Marengshringur
- 4 eggjahvítur
- ¼ tsk cream of tartar
- ¼ tsk salt
- 250 g sykur
Fylling
- 500 ml rjómi
- 2 msk flórsykur
- Börkur af ½-1 sítrónu
- 100 ml St. Dalfour bláberjasulta
- 2-3 msk vatn
- Fersk bláber
- Fersk rósmarín (má skipta út fyrir myntu)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 140°C og undir+yfir hita.
- Setjið eggjahvítur í tandurhreina skál ásamt cream of tartar og salti, þeytið þar til byrjar að freyða. Bætið þá sykrinum saman við rólega og þeytið þar til eggjahvíturnar ná alveg stífum toppum.
- Teiknið 23 cm hring á smjörpappír og snúið við smjörpappírnum svo pennastrikið snúi niður.
- Setjið marengsdeigið í sprautupoka með stórum opnum stút. Sprautið nokkrar marengs”bollur” á pennastrikið svo myndist krans. Notið bakhlið af skeið til að mynda skálar í hverja marengsbollu. Bakið í 60 mín og slökkvið þá á ofninum en ekki taka botnana úr ofninum fyrr en þeir eru orðinir alveg kaldir. Hægt er að gera botninn með allt að viku fyrirvara.
- Þeytið rjómann með flórsykri. Blandið sítrónuberki saman við rjómann, magn fer eftir smekk. Dreifið rjómanum yfir marengsinn.
- Setjið bláberjasultu og vatn í skál og hrærið saman. Dreifið yfir rjómann.
- Skolið bláberin vel og veltið þeim upp úr svolítið af sykri á meðan þau eru ennþá rök svo sykurinn límist á þeim. Raðið þeim á marengsinn og skreytið með rósmarínstilkum/myntu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar











