Linda Ben

Bláberja pönnukökur sem eru hollar og allir elska

Recipe by
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 7 pönnukökur

Þessar bláberja pönnukökur eru svo góðar! Strákurinn minn alveg elskar þær og ég elska að gefa honum þær þar sem pönnukökurnar eru ekki síður hollar!

Þær eru algjörlega hveiti lausar, með engum viðbættum sykri, stútfullar af hollum og góðum próteinum, vítamínum og steinefnum.

Bláberja pönnukökur sem eru hollar og barnvænar

Bláberja pönnukökur sem eru hollar og barnvænar

Bláberja pönnukökur sem eru hollar og barnvænar

Bláberja pönnukökur sem eru hollar og barnvænar

Bláberja pönnukökur sem eru hollar og allir elska

  • 4 dl haframjöl
  • 1 tsk lyftiduft
  • 2 egg
  • 1 frekar lítill banani
  • 1 krukka grísk haustjógúrt frá Örnu Mjólkurvörum.
  • 1 tsk vanilludropar
  • Mjólk eftir þörfum
  • 3 dl fersk bláber

Aðferð:

  1. Setjið öll innihaldsefni fyrir utan mjólkina og bláberin saman í blandara og blandið þar til deig hefur myndast.
  2. Ef deigið er mjög þykkt, bætið þá mjólk út í deigið til að gera það þynnra eftir þörfum, (gott að byrja á 2 msk, hræra og setja svo meira).
  3. Setjið bláberin í deigið og hrærið saman með sleikju.
  4. Setjið deig á pönnu, u.þ.b. ½-1 dl, steikið á hvorri hlið á meðal hita, þar til pönnukakan er bökuð í gegn.

Bláberja pönnukökur sem eru hollar og barnvænar

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5