Bláberja Vodka Sour
Þessi fallegi bláberja Vodka Sour er ferskur, passlega sætur með dásamlegu bláberjabragði. Fersk bláber eru kramin saman við vodka, sítrónusafa og sykursíróp og eggjahvítan gefur drykknum þessa silkimjúku áferð og fallegu froðu sem einkennir góðan sour-kokteil.
Bláberin gefa drykknum líka einstaklega fallegan fjólubláan lit og gera hann að algjöru augnakonfekti. Einfaldur en elegant kokteill sem er fullkominn í næsta stelpukvöld eða þegar mann langar að gera eitthvað aðeins extra 🍸



Bláberja vodka sour
- 1 dl bláber
- 3 cl Koskenkorva Vodka
- 1 eggjahvíta
- Safi úr 1/2 sítrónu
- 3 cl sykursíróp (vatn og sykur í jöfnum hlutföllum brætt saman og kælt)
- Klakar
Aðferð:
- Setjið bláberin í kokteilhristara og kremjið þau mjög vel svo safinn losni úr þeim.
- Bætið vodka, eggjahvítu, sítrónusafa og sykursírópi út í. Hristið mjög vel án klaka svo eggjahvítan þeytist og myndi fallega froðu.
- Bætið vel af klökum út í kokteilhristarann og hristið aftur þar til drykkurinn er orðinn vel kaldur.
- Hellið drykknum í gegnum fínt sigti í kalt kokteilglas. Skreytið gjarnan með nokkrum ferskum bláberjum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:






