Linda Ben

Bláberja “yfir-nótt” chiagrautur

Recipe by
15 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Hér höfum við alveg dásamlega góðan chiagraut sem er upplagt að útbúa daginn áður og borða í morgunmat. Hann inniheldur dásamlega haustjógúrtið frá Örnu sem margir bíða allt árið eftir að komi í búðir. Það kemur í takmörkuðu upplagi þar sem notast er við nýupptekin íslensk aðalbláber til að búa til jógúrtið.

Íslenska haustjógúrtið er í nýjum og umhverfisvænum umbúðum núna. Umbúðirnar flokkast með pappa.

Þó svo að hægt sé að útbúa þennan graut daginn áður þarf alls ekki að bíða svo lengi til að geta borðað hann. Nóg er að leyfa chia fræjunum að draga í sig vatnið í 10 mín áður en bláberjajógúrtinu er bætt út í, og svo er hægt að borða grautinn beint.

Bláberja "yfir-nótt" chiagrautur

Bláberja "yfir-nótt" chiagrautur

Bláberja “yfir-nótt” chiagrautur

  • 1 msk chia fræ
  • 2 msk hafrar
  • 1 dl vatn
  • 200 g íslensk hausthógúrt með íslenskum aðalbláberjum
  • 1/2 banani
  • 1 msk möndlusmjör
  • 1 msk saxaðar döðlur
  • 1 tsk kókosmjöl

Aðferð:

  1. Setjið chia fræ og hafra í skál ásamt vatni, hrærið og leyfið því að standa í 10 mín.
  2. Bætið bláberjajógúrtinu út á skálina og blandið saman. Hægt er að loka skálinni og láta grautinn bíða yfir nótt inn í ísskáp eða borða strax.
  3. Skerið bananann í sneiðar og bætið út á skálina ásamt möndlusmjöri, söxuðum döðlum og kókosmjöli.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

Bláberja "yfir-nótt" chiagrautur

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5