Blauta karamellukakan 2.0 – ennþá meira djúsí og einfaldari
Ef þú hefur fylgst með mér lengi þá manstu kannski eftir Blautu karamellukökunni minni sem sló öll met á Covid árunum 😍✨
Þessi kaka var ein vinsælasta uppskriftin á síðunni minni og ég veit um ótal heimili þar sem hún hefur verið bökuð aftur og aftur í afmæli, veislur og helgarkaffi. Núna hef ég tekið uppskriftina og gert hana enn betri.
Þetta er sem sagt Blauta karamellukakan 2.0
Nýja útgáfan er einfaldari í gerð, fljótlegri að útbúa og verður ef eitthvað er ennþá djúsíari en sú upprunalega. Mjúk vanillukaka er stungin út um allt og drifin í sig heitri karamellusósu úr Töggur karamellum sem gerir hana ótrúlega djúsí og blauta. Ofan á kemur svo létt og silkimjúkt rjómaostakrem sem passar fullkomlega með karamellubragðinu.
Útkoman er kaka sem bráðnar í munni og er ein af þessum kökum sem fólk fær sér „bara einn lítinn bita“ af … og endar svo með að koma aftur eftir meira.
Ef þú elskaðir upprunalegu útgáfuna þá held ég að þú eigir eftir að elska þessa enn meira!






Blauta karamellukakan 2.0 – ennþá meira djúsí og einfaldari
- Ljúffeng vanillukaka – þurrefnablanda Lindu Ben
- 3 egg
- 1 1/2 dl bragðlítil olía/brætt smjör
- 1 dl vatn
Karamellusósa
- 240 g Töggur rjómakaramellur frá Nóa Síríus
- 3 dl rjómi
Rjómaostakrem
- 200 g smjör við stofuhita
- 400 g flórsykur
- 1 dl rjómi
- 100 g rjómaostur
- Sælkerabaksturs karamellukurl frá Nóa Síríus sem skraut
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið vanillu kökumixið í skál ásamt eggjum, olíu/bræddu smjöri og vatni. Hrærið allt saman og setjið í smjörpappírsklætt 22×30 cm form. Bakið í 25 mín eða þar til bökuð í gegn.
- Bræðið saman töggur og rjóma í potti.
- Stingið fjölmörg göt út um allt á kökunni, mér finnst gott að nota sushi prjón í þetta. Hellið karamellusósunni yfir alla kökuna og leyfið kökunni að taka sig í a.m.k. 1 klst.
- Hrærið saman kremið með því að setja smjör og flórsykur saman í skál og þeytið vel og lengi þar til létt, mjúkt og loftmikið. Bætið þá rjómanum saman við og þeytið meira. Þegar samlagað bætið þá rjómaostinum út í og þeytið saman við. Smyrjið kreminu á kökuna.
- Skreytið með karamellukurli.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












