Bleik freyðivínssangría sem er bæði einstaklega falleg og ótrúlega fersk og góð 🥂
Hér blandast Pizzolato Rosé freyðivín, Vermouth Bianco og Sprite eða sódavatn saman við fersk hindber og sítrónu. Útkoman er léttur og sumarlegur drykkur sem er fullkominn í veisluna, saumaklúbbinn eða þegar vinkonurnar koma í heimsókn.
Sangrían er borin fram í stórri könnu með nóg af klökum, hindberjum og sítrónusneiðum. Einfalt, fallegt og einstaklega gott!




Bleik freyðivíns sangría
Uppskrift er gefin upp í hlutum þar sem könnur eru mjög misstórar. Skiptið könnunni í 6 hluta og fyllið upp samkvæmt uppskrift.
- 1 hluti Vermouth Bianco – Mulassano
- 3 hlutar Pizzolate Rosé freyðivín
- 2 hlutar Sprite eða sódavatn
- Klakar
- Sítrónusneiðar
- Driscoll’s hindber
Aðferð:
- Setjið klaka, hindber og sítrónusneiðar í könnuna.
- Setjið fyrst Vermouth í könnuna, svo freyðivín og gos.
- Blandið saman með langri skeið og hellið í glös. Gott að láta smá hindber og sítrónusneið í hvert glas.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:






