Uppáhalds smoothie krakkanna – Bleikur berjasmoothie með ab mjólk
Þessi bleiki berjasmoothie er einn af þeim drykkjum sem maður fær sér aftur og aftur. Hann er alveg einstaklega ljúffengur, ferskur, kremkenndur og fullur af góðum næringarefnum fyrir líkamann. Krakkarnir mínir alveg elska þennan smoothie og geri ég hann oft fyrir þau annað hvort í moorgunmat eða þegar þau koma heim úr skólanum.
Jarðaber, hindber og mangó gefa smoothie-num náttúrulega sætu og fallegan lit á meðan hnetusmjörið gerir hann aðeins meira mettandi og mjúkan. Það sem gerir hann svo extra góðan er AB mjólkin frá Örnu Mjólkurvörum, sem er rík af góðgerlum og gefur drykknum bæði ferskan og kremkenndan keim.
Þetta er fullkominn smoothie í morgunmat, eftir æfingu eða þegar mann langar í eitthvað fljótlegt sem er bæði næringarríkt og virkilega gott.
Og svo er hann líka bara svo fallegur á litinn að maður verður aðeins glaðari af því að drekka hann 😍



Uppáhalds smoothie krakkanna – Bleikur berjasmoothie með ab mjólk
- 1 ½ dl frosin jarðaber
- 1 dl frosin hindber
- 1 ½ dl frosið mangó
- 1 msk hnetusmjör
- 2 dl hrein Ab mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
Aðferð:
- Setjið allt saman í blandara og maukið þar til orðið að smoothie.
- Setjið örlítið ab-mjólk í hliðarnar á glasi sem skraut og hellið drykknum í glasið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








