Linda Ben

Bleikur Konudagsbrunch – Shakshuka, parfait, pönnukökur, crossant, bleikar bollakökur og mimosa

Recipe by
1 kist og 30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Bako

Það er eitthvað sérstaklega fallegt við að setjast saman í rólegheitum, dekka fallegt borð og njóta góðs matar, sérstaklega á degi sem er tileinkaður konum. Þessi bleiki Konudagsbrunch er blanda af hlýju, ferskleika og smá lúxus, þar sem bæði bragð og útlit fá að njóta sín.

Á borðinu má finna kryddaða shakshuku með mjúkum eggjum, silkimjúkt stracciatella parfait með ferskum ávöxtum, nýbakaðar pönnukökur og bleikar bollakökur með hindberjakremi. Við bætast svo croissant, reyktur lax, fallegur ostabakki og fersk mimosa í glasi – fullkomin blanda af sætum og matarmeiri réttum sem hentar bæði vinkonuboði og fjölskyldubrunchi.

Fallegt borð skiptir ekki síður máli þegar kemur að því að útbúa góðan brunch. Ég fór í Bako og fann þar bleika diska diskana og svo sæta minni diska með bleikum blómum sem mér fannst henta svo vel fyrir þetta tilefni.  Rétt val á borðbúnaði gerir ótrúlega mikið – einfaldur matur verður hátíðlegur og stemningin verður samstundis hlý og boðleg. Ég mun setja hlekki á allt borðbúnaðinn sem ég notaði svo þið getið auðveldlega fundið sömu vörur.

Þetta er brunch sem sannar að hann þarf ekki að vera flókinn til að vera góður og fallegur. Þú getur undirbúið mikið daginn áður, mér finnst best að leggja á borðið daginn áður. Það er einnig sniðugt að baka bollakökurnar daginn áður, þannig fær kremið tækifæri til að ganga inn í kökurnar og þær verða mýkri fyrir vikið. Ég nota einnig kökumixið mitt í bæði bollakökurnar og pönnukökurnar sem sparar hellingstíma án þess að fórna bragði eða gæðum. Það sem skiptir mestu máli er að taka sér tíma, njóta og halda upp á augnablikið

Hér er listi af öllu því sem ég notaði á borðið:

Bleikt Konudagsbrunch - Shakshuka - mimosa - pönnukökur - crossant - bleikar bollakökur

Bleikt Konudagsbrunch - Shakshuka - mimosa - pönnukökur - crossant - bleikar bollakökur  Bleikt Konudagsbrunch - Shakshuka - mimosa - pönnukökur - crossant - bleikar bollakökur

Bleikur Konudagsbrunch

Shakshuka

  • 1 laukur
  • 1 paprika
  • 5 hvítlauksgeirar
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1/2 tsk cumin krydd
  • 1/4 tsk chillí krydd
  • Salt og pipar
  • 6 egg
  • Kóríander

Aðferð:

  1. Skerið lauk og papriku smátt niður, steikið upp úr olíu á steypujárnspönnu með loki.
  2. Rífið hvítlauksgeirana út á pönnuna og hellið svo hökkuðu tómötunum út á pönnuna.
  3. Bætið kryddunum út á pönnuna og smakkið til með salt og pipar, leyfið öllu að malla í smástund.
  4. Búið til holur í tómatablönduna og brjótið eggin ofan í holurnar. Setjið lokið á pönnunna og leyfið eggjunum að eldast í u.þ.b. 5 – 7 mín eða þar til eggin eru orðin elduð eins og þið viljið að þau séu elduð.

Stracciatella parfait

  • Grísk jógúrt með Stracciatella
  • Granóla
  • Jarðaber
  • Perur
  • Bláber

Aðferð:

  1. Setjið helminginnn af jógúrtinu í botninn á fallegri skál.
  2. Setjið granóla yfir.
  3. Skerið jarðaber og perur, leggið með fram skálinni og setjið svo bláber líka

Pönnukökur

  • Ljúffengar pönnukökur þurrefnablanda Lindu Ben
  • 1 egg
  • 2 1/2 dl mjólk
  • 60 g brætt smjör

Aðferð:

  1. Setjið smjör á pönnu og bræðið það.
  2. Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggi, mjólk og bræddu smjöri. Hrærið öllu vel saman en ekkert vera stressa ykkur á ef blandan er kekkjótt, það jafnar sig eftir smá og hefur ekki áhrif á bragðið.
  3. Steikið u.þ.b. 2 msk af deigi í einu á báðum hliðum þar til pönnukakan er bökuð í gegn.

Bleikar bollakökur

  • Ljúffeng vanillukaka þurrefnablanda frá Lindu Ben
  • 3 egg
  • 150 g smjör/bragðlítil olía
  • 1 dl vatn

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið þurrefnablönduna, egg, brætt smjör/olíu og vatn í skál. Hrærið rólega saman í 3-4 mínútur eða þar til deigið hefur samlagast og orðið glansandi.
  3. Setjið pappírsbollakökuform í bolllakökuálbakka. Setjið deig í formin þannig þau fyllist um helming þar sem deigið lyftist mikið í ofninum. Bakið í u.þ.b. 15 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn.
  4. Kælið kökurnar að stofuhita og útbúið kremið á meðan.

Bleikt smjörkrem

  • 400 g mjúkt smjör
  • 500 g flórsykur
  • 2 dl frosin hindber

Aðferð:

  1. Setjið frosin hindber í pott og kveikið á meðalhita undir. Bræðið hindberin varlega og reynið að láta vökvann ekki gufa upp. Þegar öll hindberin eru afþyðin, hellið þeim í sigti og pressið í gegnum sigtið þannig að vökvinn komi allur úr þeim en fræin eru eftir. Hendið fræjunum en leyfið safanum að kólna.
  2. Hrærið smjörið þar til það er létt og ljóst.
  3. Bætið smjörkremsblöndunni saman við og hrærið þar til létt og loftmikið.
  4. Bætið hindberjasafanum út í og hrærið saman.
  5. Setjið deigið í sprautupoka með stórum opnum stjörnustút, sprautið einn hring af kremi á hverja köku.
  6. Skreytið með sneiddum jarðaberjum.

Ostabakki

  • Hvítmyngluostar og blámygluostar
  • Jarðaber og bláber
  • Bláberjasulta
  • Makkarónur

Annað sem er á borðinu

  • Crossant – kaupi frosin og baka þau heima í 20 mín við 180°C.
  • Reyktur lax – skera í sneiðar og raða á bakka.
  • Mimosa – Appelsínusafi 0g gott freyðivín (mér finnst Kylie mjög gott í mimosur)
  • Gott kaffi

Bleikt Konudagsbrunch - Shakshuka - mimosa - pönnukökur - crossant - bleikar bollakökur

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5