Linda Ben

Bleikur og sætur jarðaberja bragðarefur

Recipe by
10 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Bleikur og sætur jarðaberja bragðarefur.

Hér höfum við alveg ótrúlega góðan heimagerðan jarðaberja og nammi bragðaref sem bæði börn og fullorðnir elska!

Það er ofur einfalt að búa til bragðaref heima en það er líka talsvert ódýrara en að kaupa hann tilbúinn út í ísbúð. Það sem maður þarf að gera er að kaupa góðan vanilluís og setja hann í hrærivélina, ég notaði k-ið á hrærivélinni, og hræra ísinn rólega í nokkrar sek þannig að hann mýkist svolítið. Síðan smellir maður namminu og berjunum í hrærivélina líka og hrærir í smá stund, hellir svo ísnum í skálar og skreytir!

Einfalt og svo ótrúlega skemmtilegt!

Bleikur og sætur Jarðaberja bragðarefur

Bleikur og sætur Jarðaberja bragðarefur

Bleikur og sætur jarðaberja bragðarefur

  • 1 líter vanillu ís
  • 100 g jarðaber + fleiri til að skreyta með
  • 40 g Trítlar
  • 50 g Síríus Sælkerabaksturs Súkkulaðiperlur

Aðferð:

  1. Setjið vanilluísinn í hrærivél og hrærið í nokkrar sek til að mýkja ísinn.
  2. Skerið jarðaberin í 4 hluta og bætið þeim út í ísinn ásamt trítlum og súkkulaðiperlum, hrærið þar til blandað saman.
  3. Skiptið ísnum í 4 glös og skreytið glösin með jarðaberjum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Bleikur og sætur Jarðaberja bragðarefur

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5