Bleikur trönuberja martini er afskaplega bragðgóður kokteill.
Til að fá sem allra besta kokteilinn þá er mikilvægt að kaupa sætan trönuberjasafa. Ef notaður er ósætur trönuberjasafi getur drykkurinn verið rammur. Gott gin er að sjálfsöfðu mikilvægt en annað sem er gott er að gera er að setja öll hráefnin inn í ísskáp um morguninn svo allt sé kalt þegar drykknum er blandað saman.
Bleikur Martini
- 50 ml nýkreistur sítrónusafi
- 60 ml Cointeau líkjör
- 120 ml trönuberjasafi
- 60 ml gin
- Klakar
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni í blandara ásamt klökum. Hristið saman vel og hellið í glösin í gegnum sigti.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Geri þennan mjög oft! Ótrúlega ferskur og góður!