Linda Ben

Bragðgóð og matar mikil mexíkósk súpa

Recipe by
30 mín
| Servings: 6 manns

Fljótleg, bragðmikil og matarmikil súpa sem er án kjöts en stútfull af próteinum og öðrum næringarefnum sem gera okkur hraust og geislandi af heilbrigði.

Grænmetissúpurnar gerast ekki mikið betri en þessi! ????

matar mikil mexíkósk súpa

Bragðgóð og matar mikil mexíkósk súpa

  • 2 msk ólífu olía
  • 1 rauðlaukur
  • 3-4 hvítlauksgeirar
  • 1 msk malað chili krydd
  • 1 msk cumin krydd
  • 2 dósir niðursoðnir tómatar
  • 1 flaska chili tómatsósa
  • 1 l vatn
  • 2 msk kjúklingakraftur
  • 1 dós gular baunir
  • 1 dós svartar baunir
  • 1 dós nýrnabaunir
  • 2 dl rjómi
  • Rifinn ostur
  • Maís snakk flögur
  • Ferskt kóríander (má sleppa)

Aðferð:

  1. Skerið rauðlaukinn niður og steikið upp úr ólífu olíu, þegar laukurinn er orðinn steiktur í gegn, rífið þá niður hvítlaukinn og bætið á pönnuna. Því næst setjiði kryddin á pönnuna og steikið létt.
  2. Ef tómatarnir eru heilir, skerið þá niður og bætið á pönnuna. Bætið svo Heinz Chili tómatsósunni á pönnuna. Leyfið að malla í nokkrar mín.
  3. Bætið vatni á pönnuna ásamt kjúklingakraftinum.
  4. Skolið allar baunir og bætið út í súpuna. Leyfið að malla í nokkrar mín (því lengur því betra).
  5. Þegar súpan hefur fengið að malla þá bætiði rjómanum út í og náið suðunni upp aftur.
  6. Berið súpuna fram með rifnum osti, maís snakkflögum og fersku kóríander.

matar mikil mexíkósk súpa

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5