Þessi uppskrift af grilluðum laxi er guðdómlega góð! Laxinn er látinn marinerast í 20 mín ef það er möguleiki, annars skellið þið honum bara beint á grillið. Hunangið gerir það að verkum að það myndast örlítil himna ofan á laxinn sem gerir hann æðislegan.
Hér er laxinn borinn fram með avocadó frönskum en þið finnið uppskriftina af þeim hér.
Bragðmikill grillaður lax með hunangs gljáa, uppskrift:
- 700-800 g lax
- 2 msk olífu olía
- 2 msk hunang
- 2 hvítlauksgreirar
- sítrónubörkur af 1 sítrónu
- 1 tsk chili krydd
- graslaukur
Aðferð:
- Kveikið á grillinu og stillið á mikinn hita.
- Blandið saman ólífu olíu og hunangi í skál.
- Skerið hvítlaukinn örfínt og setjið út í.
- Rífið börkinn af heilli sítrónu og setjið út í.
- Blandið saman við 1 tsk af chili kryddi og hrærið í blöndunni.
- Setjið laxinn ofan á álpappír og smyrjið marineringunni á laxinn, látið marinerast í 20 mín.
- Lækkið hitann á grillinu í miðlungs hita og setjið laxinn á grillið. Setjið lokið á grillið og grillið í um það bil 7-10 mín eða þangað til kantanir á laxinum eru orðnir eldaðir í gegn en hann er ennþá dökk bleikur í miðjunni.
- Skerið graslauk, um það bil 2 msk, og dreifið yfir laxinn í lokinn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í Kosti.
Category: