Linda Ben

Buffalo kjúklingasalatvefjur

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Vaxa | Servings: 3 manns

Þessar Buffalo kjúklingasalatvefjur eru ferskar, stökkar og alveg ótrúlega bragðgóðar! 🌶️🥬

Kjúklingurinn er blandaður saman við buffalosósu, mæjónes, stökka papriku og sellerí og ferskt kóríander. Í stað hefðbundinna tortilla er kjúklingasalatið sett fersk salatblöð frá Vaxa sem gerir réttinn bæði léttan og einstaklega góðan.

Vefjurnar eru skemmtilegar að bera fram eins og lítil taco og henta vel sem léttur kvöldmatur, hádegismatur eða jafnvel á veisluborðið. Þið getið svo auðveldlega stjórnað styrkleikanum með því að setja meiri eða minni buffalosósu eftir smekk.

Buffalo kjúklinga salatvefjur

Buffalo kjúklinga salatvefjur

Buffalo kjúklinga salatvefjur

Buffalo kjúklinga salatvefjur

Buffalo kjúklinga salatvefjur

Buffalo kjúklinga salatvefjur

Buffalo kjúklingasalatvefjur

  • 3 kjúklingabringur
  • Kjúklingakryddblanda
  • 1 paprika
  • 1 sellerísstöngull
  • 15 g kóríander frá Vaxa
  • ½ – 1 dl buffalosósa
  • 1 dl mæjónes
  • Salt og pipar
  • Salathaus frá Vaxa

Aðferð:

  1. Kveikjið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Kryddið kjúklinginn og bakið inn í ofni þar til eldaður í gegn, u.þ.b. 25-30 mín. Skerið kjúklinginn niður í litla bita (eða tætið hann) og setjið í stóra skál.
  3. Skerið paprikuna og selleríið smátt og saxið kóríanderið. Setjið allt í skálina ásamt buffalo sósu og mæjónesi. Kryddið með salti og pipar og blandið öllu vel saman. Smakkið til með meiri buffalosósu
  4. Takið blöðin af salathausnum og raðið þeim á bakka. Setjið vel af kjúklingasalatinu á hvert salatblað og berið fram eins og taco.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Buffalo kjúklinga salatvefjur

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5