Linda Ben

Burrito panna

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM | Servings: 4 manns

Þessi burrito-panna er einn af þessum réttum sem eru bæði ótrúlega einfaldir í útbúningi og svo dásamlega góðir! 🌮😍

Hér er allt það besta úr góðu burrito komið saman í eina pönnu. Bragðmikið nautahakk, paprika, tómatar, svartar baunir og maískorn frá Ora blandast saman við góða salsasósu og burrito-krydd. Yfir allt fer svo vel af rifnum osti og rétturinn er bakaður í ofni þar til osturinn er orðinn bráðnaður og fallega gylltur.

Til að toppa þetta allt saman er mexíkósk ostasósa borin fram með réttinum ásamt fersku kóríander. Útkoman er einstaklega djúsí og bragðgóður réttur sem er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna.

Mér finnst sérstaklega skemmtilegt við þessa uppskrift að hver og einn getur borðað réttinn eins og honum finnst best. Það er til dæmis geggjað að bera hann fram með stökkum nachos-flögum og nota þær til að skófla upp öllu þessu góðgæti. Einnig er að sjálfsögðu hægt að bera hann fram inn í tortillavefjum.

Fullkominn hversdagsréttur þegar mann langar í eitthvað extra gott án þess að eyða miklum tíma í eldhúsinu! ❤️

Burrito panna

Burrito panna

Burrito panna

Burrito panna

  • 100 g hrísgrjón
  • 500 g nautahakk
  • 2 msk burrito kryddblanda
  • 1 rauðlaukur
  • 2-3 hvítlauksgeirar
  • 1 paprika
  • 3 tómatar
  • 300 g salsasósa
  • 420 g Ora maískorn
  • 400 g svartar baunir
  • 200 g rifinn ostur
  • Mexíkósk ostasósa
  • Kóríander

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita.
  2. Sjóðið hrísgrjón þar til þau eru tilbúin.
  3. Steikið nautahakkið á stórri pönnu ásamt burrito-kryddblöndunni þar til það er fulleldað.
  4. Skerið rauðlaukinn, paprikuna og tómatana smátt og bætið út á pönnuna. Rífið hvítlauksgeirana út í og steikið allt saman í nokkrar mínútur, þar til grænmetið hefur mýkst örlítið.
  5. Hellið vökvanum af maískorninu og svörtu baununum og skolið baunirnar. Bætið hvoru tveggja út á pönnuna ásamt salsasósunni og blandið vel saman. Látið malla í 2–3 mínútur.
  6. Setjið hrísgrjónin ofan í réttinn og blandið saman.
  7. Dreifið rifna ostinum jafnt yfir og setjið pönnuna inn í ofn. Bakið í u.þ.b. 10–15 mínútur, eða þar til osturinn hefur bráðnað og er farinn að gyllast. Ef pannan sem þið notið má ekki fara inn í ofn, setjiði þá réttinn fyrst í eldfast mót, setjið svo ostinn yfir og bakið inn í ofni.
  8. Hitið mexíkósku ostasósuna í litlum potti. Dreifið henni yfir réttinn eða berið fram með honum ásamt fersku, söxuðu kóríander.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Burrito panna

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5