Ceasar salat er eitt af þessum salötum sem maður verður eiginlega aldrei leiður á, sérstaklega þegar það er extra bragðmikið og með fersku sumar twisti.
Safaríkar kjúklingalundir, stökkt róman salat, parmesan og crunchy brauðteningar blandast saman við kremkennda heimagerða Ceasar dressingu sem er alveg lykillinn að góðu salati. Og svo bæta fersku jarðaberin við ótrúlega góðri sætu og ferskleika sem passar svo vel með salta parmesaninum og djúpa bragðinu í dressingunni.
Með þessu er Adobe rósavínið alveg æðislegt. Það er ferskt, létt og sumarlegt og passar svo vel með bæði jarðaberjunum, dressingunni og parmesan bragðinu í salatinu. Svona combo sem er fullkomið í sumar, sama hvernig viðrar.



Ceasar salat með jarðaberjum
- 700 g kjúklingalundir
- Salt og pipar (má setja kjúklingakryddblöndu líka)
- Romain salat
- Brauðteningar
- Parmesan ostur
- Jarðaber
- Ceasar dressing (uppskrift hér fyrir neðan)
Aðferð:
- Kryddið kjúklinginn og steikið hann á pönnu.
- Takið Roman salatið og skerið það niður, dreifið salatinu svo á fallegan disk.
- Skerið kjúklinginn og dreifið yfir salatið ásamt brauðteningum, parmesan osti, söxuðum jarðaberjum og ceasar dressingu, blandið öllu vel saman.
Ceasar dressing
- 2 hvítlauksgeirar úr ferskum hvítlauk
- 2 ansjósur
- 2 msk sítrónusafi
- 1 tsk Dijon sinnep
- 1 tsk Worchestersósa
- 2 dl mæjónes
- 1 dl rifinn parmesan ostur
- 1 tsk rauðvínsedik
- Svartur pipar eftir smekk
Aðferð:
- Allt sett í blandara og blandað saman.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar







