Chia skyrskál.
Hér höfum við afskaplega hollan og bragðgóða skyrskál sem er stútfull af góðri næringu og keyrir okkur í gang. Hentugt sem morgunmatur eða millimál.
Chia skyrskál
- 1 msk chia fræ
- 1/2 dl vatn
- 200 g Örnu skyr með vanillubragði
- 1 msk hnetusmjör
- Ristaðar kókosflögur
- ½ banani
- 100 g brómber eða önnur ber að eigin vali
Aðferð:
- Blandið saman vatni og chia fræjum, leyfið þeim að draga allan vökvann í sig þannig að þau verði að geli.
- Þegar chia fræin eru orðin að geli, blandið þeim þá saman við vanillu skyrið. Setjið í skál og toppið með hnetusmjöri, banana sneiðum, ristuðum kókosflögum og berjum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: