Sumarlegur morgunverður þarf ekki að vera flókinn. Þessi chia jógúrt er einstaklega fersk, próteinrík og heldur manni söddum langt fram eftir degi 🍓☀️
Suðræna sumarútgáfan af gríska jógúrtinu frá Örnu passar einstaklega vel með chia fræjum, ferskum jarðaberjum og stökkum pistasíuhnetum. Chia fræin gefa jógúrtinu dásamlega kremkennda áferð og mikilvæga trefja og próteinduftið bætir við enn meiri fyllingu.
Fullkominn morgunverður eða millimál sem hægt er að undirbúa kvöldið áður og grípa svo með sér þegar dagurinn byrjar.




Chia sumarjógúrt með pistasíum og jarðaberjum
- Arna grísk jógúrt með hindberjum og sítrónu – suðræn sumarútgáfa
- 1 msk chia fræ
- 1 msk próteinduft – ég nota alltaf hreint, en það má líka nota t.d. vanillu eða jarðaberja
- Jarðaber
- Pistasíuhnetur
Aðferð:
- Setjið gríska jógúrtið í skál og blandið chia fræjum saman við, látið standa í a.m.k. 8 klst í kæli með plastfilmu yfir.
- Bætið próteinduftinu út í og blandið saman.
- Skerið niður jarðaber og pistasíuhnetur og bætið út á jógúrtið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:







