Þetta ljúffenga chillí mæjó er dásamleg blanda af sætu, sterku og fersku bragði. Hot honey gefur sósunni skemmtilega sætu, sriracha bætir við smá hita og límónusafinn gefur henni góðan ferskleika.
Sósan er ótrúlega einföld og tekur aðeins örfáar mínútur að útbúa. Hún passar einstaklega vel með stökkum kjúklingavefjum, hamborgurum, samlokum, frönskum kartöflum og alls konar hrísgrjónaskálum.
Þetta er ein af þessum sósum sem gerir góðan mat enn betri og maður vill helst setja á allt! 😍
Chillí mæjó
- 3 msk majónes
- 1 msk hot honey
- 1–2 tsk sriracha
- 1 tsk límónusafi
- Smá hvítlauksduft
Aðferð:
- Setjið allt saman í skál og hrærið saman.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Category:





