Linda Ben

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Recipe by
4 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 6 skálar

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum mandarínum er hátíðlegt eftirréttameistaraverk.

Þessi eftirréttur er fullkominn fyrir jól, áramót eða hvaða veislu sem er þar sem þú vilt heilla gestina.
Hann er einfaldari en hann lítur út – en útkoman er lúxus í hverjum bita. Silkimjúk áferð, glansandi karamelluskorpa og mandarínur sem gefa réttinum ferskt og hátíðlegt bragð.

Ef þú vilt sjá ítarlegt myndband með þessari uppskrift þá skaltu ýta hér.

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum mandarínum

  • 500 ml rjómi

  • 5 eggjarauður

  • 80 g sykur

  • 1–2 msk Cointreau

  • 1 vanillustöng

  • Sykur til að brenna ofan á

Aðferð

  1. Skerið í vanillustöngina endilanga til að opna hana. Skafið innan úr henni með hníf og setjið í pott með rjóma. Hitið að nánast suðu (ekki sjóða). Takið af hitanum.
  2. Þeytið saman eggjarauður og sykur þar til blandan er ljós og létt.
  3. Hellið heita rjómanum rólega út í eggjablönduna á meðan þið hrærið stöðugt. Bætið Cointreau út í.
  4. Sigtið blönduna og hellið í 10 cm breiðar eldfastar skálar.
  5. Setjið skálarnar í stórt eldfast mót og hellið sjóðandi heitu vatni í mótið (u.þ.b. helming upp á skálarnar).
  6. Bakið við 150°C í 35–45 mín – yfirborðið á að vera stíft en miðjan aðeins „jiggy“.
  7. Kælið í að minnsta kosti 3–4 klst.
  8. Stráið sykri yfir og bræðið með gasbrennara þar til falleg karamelluskorpa myndast.

Karamellaðar appelsínur

  • 2 mandarínu (skornar í þunnar sneiðar)

  • 3 msk sykur

  • 1 msk smjör

  • Örlítið sjávarsalt
  • 1 msk Cointreau

Aðferð

  1. Bræðið smjör á pönnu og bætið sykri út í. Látið hitna þar til sykurinn og smjörið bráðna saman og verður gyllt á litinn. Bætið örlitlu sjávarsalti út á.
  2. Leggið mandarínusneiðarnar á pönnuna og látið malla í 2–3 mínútur á hvorri hlið.
  3. Hellið 1 msk Cointreau út á og leyfið að malla aðeins saman, 2-3 mínútur.
  4. Takið varlega upp úr pönnunni með spaða og látið kólna á smjörpappír.
  5. Leggðu karamellaða mandarínusneið ofan á crème brûlée skálarnar.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Cointreau Crème Brûlée með karamelluðum appelsínum

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5