Linda Ben

Dásamleg rjómalöguð kalkúnasósa

Recipe by
15 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Lindsay | Servings: 6- 8 manns

Dásamlega bragðmikil og rjómakennd hátíðarkalkúnasósa sem setur punktinn yfir i-ið á hátíðarmáltíðinni.

Ég nota kantarellu- og sveppasósuna frá TORO sem grunn að sósunni og bæti við góðu kalkúnasoði, rjóma og kalkúnakryddi frá Pottagöldrum. Rifsberjahlaupið gefur sósunni ljúffenga sætu á meðan dijon-sinnepið gefur henni örlítinn keim af sýru og skapar dásamlegt jafnvægi í bragðinu.

Það skemmtilega við þessa sósu er hvað hún er einföld í framkvæmd en bragðast samt eins og maður hafi eytt löngum tíma í að útbúa hana. Silkimjúk, bragðmikil og einstaklega ljúffeng sósa sem maður vill helst setja yfir allt á disknum!

Ljúffeng kalkúnasósa

Ljúffeng kalkúnasósa

Ljúffeng kalkúnasósa

Dásamleg rjómalöguð kalkúnasósa

  • 50 g smjör
  • Tvö bréf Kantarell – og sjampinjongasaus frá TORO
  • 3 dl kalkúnasoð
  • 500 ml rjómi
  • 1-2 msk kalkúnakrydd frá Pottagöldum
  • 2-3 msk fljótandi kalkúnakraftur
  • 2-3 msk rifsberjahlaup
  • 2 tsk dijon sinnep
  • Salt ef þarf

Aðferð:

  1. Bræðið smörið í potti og bætið út í pottinn tveimur bréfum af Kantarell – og sjampinjongasaus frá TORO.
  2. Bætið saman við kalkúnasoði, ég notaði það sem myndaðist vel endunina af kalkúnabringunni og bætti við vatni.
  3. Hellið rjóma út í pottinn. Kryddið til með kalkúnakryddi og bætið við kalkúnakrafti.
  4. Látið suðuna koma upp og leyfið sósunni að malla við vægan hita í nokkrar mínútur þar til hún hefur þykknað. Hrærið reglulega.
  5. Smakkið sósuna til með rifsberjahlaupi, dijon-sinnepi og salti ef þarf.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5