Djúsí BBQ kjúklingaborgari með fersku hrásalati
Þetta er svona borgari sem maður fær löngun í aftur og aftur. Djúsí, hægeldaður BBQ kjúklingur sem er rifinn niður og drýpur af sósu, borinn fram í mjúku hamborgarabrauði með fersku og stökku hrásalati. Hér finnur þú fullkomið jafnvægi á milli sætleika, sýru og ferskleika.
Kjúklingalærin verða einstaklega safarík og bragðmikil þegar þau fá að malla rólega í Hunts original BBQ sósunni. Hrásalatið með lime og mæjónesi gefur léttan og ferskan kontrast sem lyftir öllum réttinum upp og gerir hann ekki of þungan.
Þetta er fullkominn réttur fyrir helgarkvöld, grillstemningu eða þegar þig langar í eitthvað „comfort food“ sem er bæði einfalt og ótrúlega gott 🍔✨





Djúsí BBQ kjúklingaborgari með fersku hrásalti
- 700 g kjúklingalæri
- Kjúlingakryddblanda
- Hunts original BBQ sósa
- Hamborgarabrauð
- Mæjóns
- Súrar gúrkur
- Ferskt hrásalat
Ferskt hrásalat
- 1/4 haus hvítkál
- 1/4 haus rauðkál
- 2 gulrætur
- 1 dl mæjóes
- Salt eftir smekk
- Safi úr 1 lime
Aðferð:
- Kryddið kjúklinginn og steikið á pönnu þar til falleg húð myndast. Stejið þá vel af bbq sósu yfir kjúklinginn og setjið lokið á pönnuna, leyfið kjúklingnum að malla rólega í sósunni þar til hann er eldaður í gegn.
- Ef þú vilt grilla kjúklinginn þá byrjaru á því að krydda hann vel og grilla þar til falleg húð hefur myndast. Svo smyrðu hann vel með bbq sósunni og klárar að grilla mjög rólega þar til hann er eldaður í gegn.
- Rifið kjúklinginn niður með tveimur göfflum, setjið í skál og bætið við meiri BBQ sósu ef ykkur finnst vanta.
- Útbúið hrásalatið með því að saxa hvítkál, rauðkál og gulrætur í mjóa strimla (hér finnst mér best að nota mandolín). Setjið allt í skál með mæjónesi, salti og lime safa, blandið öllu vel saman.
- Hitið hamborgarabrauðin og smyrjið þau með mæjónesi, setjið vel af tætta kjúklingnum á brauðin ásamt súrum gúrkum og hrásalti.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar









