Þessar dásamlega djúsí sítrónupönnukökur með léttu sítrónurjómaostakremi eru algjört sælgæti! Pönnukökurnar eru mjúkar og léttar með ferskum sítrónukeim og ljúffengt kremið minnir á sítrónuostaköku.
Leyndarmálið er gríska jógúrtið með sítrónuostakökubragði frá Örnu Mjólkurvörum, sem ég nota bæði í pönnukökudeigið og kremið. Það gefur pönnukökunum dásamlega mjúka og djúsí áferð og kreminu ferskt og gott bragð. Þið þekkið mögulega sítrónuostaköku grísku jógúrtina frá því að það kom út tímabundið fyrir svolitlu síðan og sló rækilega í gegn. Núna er það hins vegar komið til að vera sem ég er svo sannarlega ánægð með því þetta jógúrt er svo svakalega gott og í miklu uppáhaldi hjá okkur fjölskyldunni.
Ég nota að sjálfsögðu pönnukökumixið mitt sem gerir uppskriftina einstaklega einfalda og fljótlega. Fullkomnar pönnukökur fyrir helgarbrönsinn eða þegar mann langar að gera aðeins extra vel við sig! 🍋💛









Djúsí sítrónu pönnukökur með léttu sítrónurjómaostakremi
- Ljúffengar pönnuukökur Lindu Ben
- 1 egg
- 60 g brætt smjör
- 180 g Arna grískt jógúrt sítrónu ostakaka
- 1 ½ dl mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
- Sítrónubörkur af ½ sítrónu
Sítrónurjómaostakrem
- 180 g Arna grískt jógúrt sítrónu ostakaka
- 150 g rjómaostur
- 1-2 msk flórsykur
Aðferð:
- Setjið pönnukökumixið í skál ásamt eggi, bræddu smjöri, grísku jógúrti með sítrónuostakökubragði, mjólk og sítrónuberki. Hrærið saman þar til deigið er orðið jafnt og kekkjalaust. Setjið örlítið meiri mjólk ef deigið er mjög þykkt.
- Hitið pönnu við meðalhita og setjið örlítið smjör á hana ef þarf. Setjið u.þ.b. 1 dl af deigi á pönnuna fyrir hverja pönnuköku og steikið á báðum hliðum þar til pönnukökurnar eru gullinbrúnar og eldaðar í gegn.
- Útbúið kremið með því að hræra saman grísku jógúrti, rjómaosti og flórsykri þar til kremið er orðið mjúkt og slétt. Smakkið til með flórsykrinum.
- Leyfið pönnukökunum að kólna örlítið og smyrjið sítrónurjómaostakreminu á þær.
- Berið fram og njótið!
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












