Linda Ben

Donna marengstertan

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 8-10 manns

Þegar ég var í Kaupmannahöfn með vinkonum mínum fórum við út að borða á veitingastað sem heitir Donna. Þar fengum við okkur marengstertu í eftirrétt sem var svo ótrúlega góð að ég hef eiginlega ekki getað hætt að hugsa um hana síðan!

Auðvitað varð ég að prófa að útbúa mína eigin útgáfu af þessari dásamlegu köku þegar ég kom heim.

Ég er að sjálfsögðu ekki með upprunalegu uppskriftina frá Donna, en eftir að hafa smakkað kökuna og velt henni aðeins fyrir mér í huganum ítrekað, þá ímynda ég mér að hún sé eitthvað í þessa átt.

Kakan samanstendur af stökkum marengsbotni, silkimjúkri fyllingu úr hvítu súkkulaði, rjómaosti og rjóma, hindberjasósu og ferskum jarðarberjum. Samsetningin er alveg dásamleg! Sætan úr marengsinum og hvíta súkkulaðinu passar svo ótrúlega vel með ferskleikanum og örlítilli súrri skerpu frá hindberjunum.

Eini augljósi munurinn á minni útgáfu og kökunni sem við fengum á Donna er að þar var hún borin fram með hindberjasorbeti í stað hindberjasósu. Þar sem það getur verið ansi erfitt að nálgast gott hindberjasorbet hér heima ákvað ég að einfalda okkur öllum lífið og útbúa hindberjasósu í staðinn. Hún passar einstaklega vel með kökunni og gerir uppskriftina mun aðgengilegri.

Ef þið finnið hins vegar hindberjasorbet mæli ég eindregið með að prófa að bera það fram með kökunni í stað sósunnar og fá þannig útgáfu sem er enn nær þeirri sem veitti mér innblásturinn.

Ég er svo ánægð með útkomuna og finnst alveg ótrúlega gaman að hafa náð að endurskapa þessa eftirminnilegu marengstertu á minn eigin hátt. Vonandi eigið þið eftir að elska hana jafn mikið og ég! 💗

Donna marengstertan

Donna marengstertan

Donna marengstertan

Donna marengstertan

Donna marengstertan

Donna marengstertan

Donna marengstertan

  • 3 eggjahvítur
  • ¼ tsk. cream of tartar
  • ¼ tsk. salt
  • 230 g sykur
  • Jarðaber

Hvít súkkulaði rjómaostafylling

  • 200 g Philadelphia rjómaostur
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 300 ml rjómi

Hindberjasósa

  • 4 dl frosin hindber
  • 1 ½ stk matarlímsblað

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 120°C, undir- og yfirhita.
  2. Setjið eggjahvíturnar í hreina og þurra hrærivélarskál ásamt cream of tartar og salti. Þeytið þar til blandan byrjar að freyða. Bætið sykrinum smám saman út í og þeytið áfram þar til marengsinn er orðinn þykkur, glansandi og myndar stífa toppa. Sykurinn á að vera að mestu uppleystur.
  3. Teiknið 22 cm hring á bökunarpappír og snúið pennastrikinu niður. Setjið marengsinn í sprautupoka og sprautið honum innan hringsins. Gott er að mynda örlitla dæld í miðjunni svo fyllingin haldist betur á sínum stað. Bakið í u.þ.b. 1½ klukkustund. Slökkvið þá á ofninum og látið marengsinn kólna alveg inni í honum
  4. Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn í 5–10 mínútur.
  5. Setjið frosnu hindberin í lítinn pott og hitið varlega þar til þau hafa þiðnað og mýkst. Pressið berin í gegnum fínt sigti og fjarlægið fræin.
  6. Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og bræðið þau varlega í potti. Blandið því saman við hindberjasafann. Setjið í kæli þar til sósan er köld og farin að þykkna örlítið, en ekki orðin alveg stíf.
  7. Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði og látið það kólna lítillega. Hrærið rjómaostinn þar til hann er mjúkur og blandið súkkulaðinu saman við.
  8. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við rjómaostablönduna.
  9. Setjið fyllinguna í sprautupoka og sprautið henni fallega yfir kaldan marengsbotninn.
  10. Dreifið hindberjasósunni yfir fyllinguna.
  11. Skerið jarðarberin niður og raðið þeim fallega yfir kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Donna marengstertan

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5