Drauga jarðaber
Hversu krúttleg eru þessi litlu jarðarberjadraugakrútt! 👻🍓
Þetta er svo skemmtileg og einföld hugmynd fyrir hrekkjavökuna sem er tilvalið að útbúa með krökkunum. Ferskum jarðarberjum er dýft í brætt hvítt súkkulaði frá Nóa Síríus og þeim síðan komið fyrir á litlum súkkulaðihölum svo þau líti út eins og litlir draugar. Að lokum fá þau augu og opinn draugamunn úr rjómasúkkulaði.
Samsetningin af ferskum, safaríkum jarðarberjum og sætu hvítu súkkulaðinu er alveg dásamleg og draugarnir verða svo ótrúlega sætir.
Þetta er ein af þessum hugmyndum sem eru svo einfaldar í framkvæmd en vekja alltaf mikla lukku, sérstaklega hjá krökkunum. Fullkomið á hrekkjavökuborðið eða bara til að gera eitthvað skemmtilegt og gott saman í eldhúsinu. 🧡👻
Ég myndi halda grænu blöðunum á jarðarberjunum meðan þau eru hjúpuð. Þá er auðveldara að halda á þeim og dýfa þeim í súkkulaðið. Einnig er best að útbúa draugana samdægurs, því fersk jarðarber geta með tímanum gefið frá sér raka sem hefur áhrif á súkkulaðihjúpinn.




Drauga jarðaber
- 400 g jarðaber
- 300 g Síríus hvítir súkkulaðidropar
- 50 g Síríus rjómasúkkulaðidropar
Aðferð:
- Þvoið jarðarberin og þerrið þau mjög vel. Mikilvægt er að þau séu alveg þurr áður en þeim er dýft í súkkulaðið.
- Bræðið hvítu súkkulaðidropana í skál yfir vatnsbaði.
- Leggið bökunarpappír á bakka. Setjið svolítið af bræddu hvítu súkkulaði á pappírinn og dragið það út með bakhliðinni á matskeið þannig að það myndi langan, mjókkandi draugahala. Endurtakið fyrir öll jarðarberin.
- Dýfið jarðarberjunum í hvíta súkkulaðið þannig að þau hjúpist vel. Leggið þau síðan ofan á breiðari enda súkkulaðihalanna og látið súkkulaðið harðna.
- Bræðið rjómasúkkulaðidropana yfir vatnsbaði.
- Dýfið endanum á grillpinna eða öðrum mjóum pinna í brædda rjómasúkkulaðið og teiknið tvö augu og opinn draugamunn á hvert jarðarber. Látið súkkulaðið storkna alveg áður en draugarnir eru bornir fram.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








