Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús.
Þetta er einfaldur en virkilega góður réttur sem kallar ekki á neina sérstaka hæfileika í eldhúsinu. Andalærin kaupir maður tilbúin í niðursuðudós, hljómar kannski ekki eins og veislumatur í fyrstu en það virkilega er það samt. Þetta er klassískur franskur réttur sem klikkar aldrei.
Borið fram með ljúffengri appelsínusósu, kartöflumús, rósakáli og góðu rauðvínsglasi.
Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús
- 1 dós niðursoðin andalæri
- Rósakál
- Kartöflumús (hér fyrir neðan)
- Appelsínusósa (hér fyrir neðan)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
- Raðið andalærunum í eldfast mót, takið sem mest af fitunni af lærunum fyrst. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 30-35 mín.
- Setjið rósakálið í eldfast mót ásamt örlítið af andarvitunni, u.þ.b. 1 msk, veltið því vel upp úr, kryddið með salti og bakið inn í ofni í 30-35 mín.
- Útbúið sósuna og kartöflumúsina á meðan þetta er inn í ofni.
Appelsínu sósa
- 100 g sveppir
- 1 msk smjör
- 4 msk sykur
- 1 dl vatn
- 1 dl hvítvín
- 1 tsk hvítvínsedik
- 4 dl nýkreistur appelsínusafi
- 400 ml vatn
- 1 msk andakraftur
- 50 g kalt smjör í teningum
- Salt og pipar
- Sósu þykkir eftir þörf
Aðferð:
- Setjið sykur og vatn á pönnu og leyft að sjóða þar til karamellan hefur brúnast.
- Skerið niður sveppina og steikið upp úr smjöri á annari pönnu.
- Hvítvíninu og hvítvínsedikinu er bætt út á karamelluna, hrærið saman við og soðið þar til sósan er orðin þykkt síróp.
- Hellið appelsínusafanum út á og hrærið saman við. Sósan er látin sjóða niður u.þ.b. helming.
- Bætið vatninu, sveppunum og kraftinum út í og þykkið með sósu jafnara, hrærið vel í.
- Slökkvið undir sósunni og bætið smjörinu út í, hrærið í sósunni og passið að hún sjóði ekki eftir að smjörið hefur farið út í.
- Smakkið til með salti og pipar.
Kartöflumús
- 1000 g forsoðnar kartöflur
- 100 g smjör
- 1 ½ dl mjólk
- 1 msk sykur
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Setjið kartöflurnar í hrærivél eða stappið með kartöflustappara. Bræðið smjörið og blandið saman við ásamt mjólkinni.
- Kryddið til með salti og pipar.
Category: