Linda Ben

Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús

Recipe by
1 klst
| Servings: 4 manns

Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús.

Þetta er einfaldur en virkilega góður réttur sem kallar ekki á neina sérstaka hæfileika í eldhúsinu. Andalærin kaupir maður tilbúin í niðursuðudós, hljómar kannski ekki eins og veislumatur í fyrstu en það virkilega er það samt. Þetta er klassískur franskur réttur sem klikkar aldrei.

Borið fram með ljúffengri appelsínusósu, kartöflumús, rósakáli og góðu rauðvínsglasi.

Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús

Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús

Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús

  • 1 dós niðursoðin andalæri
  • Rósakál
  • Kartöflumús (hér fyrir neðan)
  • Appelsínusósa (hér fyrir neðan)

Aðferð:

  • Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  • Raðið andalærunum í eldfast mót, takið sem mest af fitunni af lærunum fyrst. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 30-35 mín.
  • Setjið rósakálið í eldfast mót ásamt örlítið af andarvitunni, u.þ.b. 1 msk, veltið því vel upp úr, kryddið með salti og bakið inn í ofni í 30-35 mín.
  • Útbúið sósuna og kartöflumúsina á meðan þetta er inn í ofni.

Appelsínu sósa

  • 100 g sveppir
  • 1 msk smjör
  • 4 msk sykur
  • 1 dl vatn
  • 1 dl hvítvín
  • 1 tsk hvítvínsedik
  • 4 dl nýkreistur appelsínusafi
  • 400 ml vatn
  • 1 msk andakraftur
  • 50 g kalt smjör í teningum
  • Salt og pipar
  • Sósu þykkir eftir þörf

Aðferð:

  1. Setjið sykur og vatn á pönnu og leyft að sjóða þar til karamellan hefur brúnast.
  2. Skerið niður sveppina og steikið upp úr smjöri á annari pönnu.
  3. Hvítvíninu og hvítvínsedikinu er bætt út á karamelluna, hrærið saman við og soðið þar til sósan er orðin þykkt síróp.
  4. Hellið appelsínusafanum út á og hrærið saman við. Sósan er látin sjóða niður u.þ.b. helming.
  5. Bætið vatninu, sveppunum og kraftinum út í og þykkið með sósu jafnara, hrærið vel í.
  6. Slökkvið undir sósunni og bætið smjörinu út í, hrærið í sósunni og passið að hún sjóði ekki eftir að smjörið hefur farið út í.
  7. Smakkið til með salti og pipar.

Kartöflumús

  • 1000 g forsoðnar kartöflur
  • 100 g smjör
  • 1 ½ dl mjólk
  • 1 msk sykur
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið kartöflurnar í hrærivél eða stappið með kartöflustappara. Bræðið smjörið og blandið saman við ásamt mjólkinni.
  2. Kryddið til með salti og pipar.

Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5