Linda Ben

Eggaldin pizza – þessi mun koma þér á óvart!

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 2 manns

Eggaldin pizza er það sem hefur komið mér hvað mest á óvart undanfarið.

Ég rakst á svipaða hugmynd af eggaldin pizzu á netinu um daginn þegar ég var að leita mér að innblæstri fyrir síðuna. Mér fannst þetta afar áhugaverð hugmynd og ákvað að prófa að gera mína eigin útfærslu af þessu. Ég var svo sem ekki að búast við neinu sérstöku, ég skal alveg viðkenna að ég var alveg smá hrædd um að þetta væri vont en forvitnin rak mig áfram. Ég smellti í þetta, tók út úr ofninum, smakkaði, og vá ég var í sjokki! Þetta var bara í alvörunni hrikalega gott!

Að mínu mati er algjör lykill að hafa rifinn ostu með piparkryddosti og heitt pizzakrydd, kannski er það bara ég því ég elska svolítið sterkan grænmetismat, en allavega, ef þú ert eins og ég með það, passaðu að sleppa því ekki.

Að sjálfsögðu er hægt að setja hvað sem er ofan á “pizzuna”, ég var ekkert að flækja þetta og smellti sveppum ofan á, en þú lætur ekki hugmyndaflugið þitt enda þar, prófaðu að smella uppáhalds pizzaálegginu þínu ofan á og ég er viss um að þú verður alsæl/l með útkomuna.

Ég þarf ekki að taka það fram en geri það nú samt, þetta er alveg klárlega hollari útgáfa af hefðbundinni pizzu, minna brauð og meira grænmeti.

Eggaldin pizza

Eggaldin pizza

Eggaldin pizza

Eggaldin pizza

  • Eggaldin
  • 2 msk ólífu olía
  • Pastasósa
  • Rifinn Mozzarella með pipar kryddosti
  • Sveppir
  • Hvítlauksgeiri
  • Heitt (sterkt) pizzakrydd

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 200°C.
  2. Skerðu eggaldinið langveginn í sneiðar (u.þ.b. 1 cm þykkar).
  3. Penslaðu ólífu olíu á eggaldinið og svo pizzasósu.
  4. Setjið ost ofan á og svo álegg eins og t.d. sveppi.
  5. Rífið hvítlauksrifið yfir og kryddið vel með pizzakryddi.
  6. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 20 mín eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Eggaldin pizza

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5