Linda Ben

Einfaldar rósa bollakökur, mini ostakökur og súkkulaðibombur

Ef þú ert að leita að fallegum, einföldum veisluréttum sem heilla alla gestina upp úr skónum þá skaltu halda áfram að lesa. Þessar sætu kökur líta út fyrir að vera flóknar en eru í raun ótrúlega auðveldar ✨

Hér geri ég rósalaga bollakökur, mini Stracciatella ostakökur og súkkulaðibombur allar með sílíkon formum sem auðvelda svo sannarlega baksturinn og tekur útlitið á næsta stig. Fullkomið fyrir veisluborð þar sem þú vilt hafa eitthvað sem er bæði fallegt á að líta og ómótstæðilega gott. Rósabollakökurnar eru mjúkar og léttar að innan með silkimjúku smjörkremi sem er mótað í fallegar rósir með sílíkonforminu. Engir sprautupokar eða sprautunarhæfileikar nauðsynlegir til að gera þessar fallegu rósabollakökur.

Svona veisluborð sem fólk bæði myndar og klárar alveg.

Hér finnur þú sílíkonformin sem ég nota til að gera kökurnar:

Einfaldar rósa bollakökur, mini ostakökur og súukkulaðibombur

Einfaldar rósa bollakökur, mini Stracciatella ostakökur og súkkulaðibombur

Einfaldar rósa bollakökur

  • Ljúffeng vanillukaka Lindu Ben þurrefnablanda
  • 3 egg
  • 1 dl vatn
  • 1 ½ dl brætt smjör eða bragðlítil olía

Smjörkrem

  • 400 g mjjúkt smjör
  • 500 g flórsykur
  • 1 dl rjómi
  • 1 tsk vanilludropar

Aðferð

  1. Byrjað er á því að baka bollakökurnar. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið þurrefnablönduna, egg, vatn og brætt smjör/olíu í skál og hrærið saman. Setjið í bollakökuform, fyllið formin upp 2/3. Bakið í 15 mín eða þar til þær eru bakaðar í gegn. Leyfið kökunum að kólna.
  3. Setjið smjör í hrærivélaskál og þeytið þar til mjúkt og létt. Setjið þá flórsykurinn út í og hrærið saman.
  4. Bætið vanilludroppum og rjómanum út í rólega og þeytið mjög vel og lengi, 3-5 mín, eða þangað til kremið er orðið alveg hvítt, létt og mjög loftmikið.
  5. Skiptið skreminu í 3 skálar og setjið bleikan matarlit í eina skál, fjólubláa í aðra og grænan í þriðju, hrærið saman við svo liturinn sé jafn og fallegur.
  6. Fyllið rósa sílíkonformið til helminga af smjörkremi, setjið vel í botninn og á kantana en skiljið eftir gat í miðjunni fyrir kökuuna.
  7. Takið bollakökurnar úr pappírsformunum og setjið eina köku ofan í hverja smjörkremsfyllta rós, þrýstið kökunni varlega niður svo hún liggi alveg upp að kreminu.
  8. Setjið í frysti í 5 mín og þrýstið svo kökunum varlega upp úr sílíkonforminu, raðið á fallegan disk og endurtakið fyrir það sem eftir er af smjörkreminu og bollakökunum.

Ómótstæðileg súkkulaðibomba með karamellusúkkulaðimús

Stracciatella ostakaka

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

Einfaldar rósa bollakökur, mini ostakökur og súukkulaðibombur

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5