Þessi einfaldi fiskréttur er mjög fljótlegur að útbúa. Hann inniheldur aðeins 8 innihaldsefni sem eiga það sameiginlegt að vera yfirleitt til í skápunum í eldhúsinu. Það er því lítið mál að útbúa þennan holla og bragðgóða fiskrétt með lítilli fyrirhöfn.
Einfaldur fiskréttur: Skötuselur með fetaosti og spínati
- 400 g skötuselur
- 2 tsk cumin fræ
- 2 tsk timjan
- salt og pipar
- ólífuolía
- 200 g spínat
- ½ krukka fetaostur, með olíunni
- börkur af ½ sítrónu
Aðferð:
- Merjið cuminfræin, timjanið, gróft sjávarsalt og pipar saman í mortel, setjið yfir skötusels flökin.
- Hitið pönnu og setjið olíu á pönnuna.
- Setjið vatn og 1 tsk salt í stóran pott og sjóðið.
- Steikið skötusels flökin á pönnunni á miðlungshita í 3-4 mín á hverri hlið (tími fer eftir hversu stór flökin eru).
- Setjið spínatið út í sjóðandi salt vatnið og sjóðið það í 3 mín. Sigtið spínatið frá, leggið það á eldhúspappír og þurrkið sem mest af vatninu.
- Setjið spínatið á stóran disk, setjið fiskinn ofan á og svo feta ostinn.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: